SBA lögmannsstofa veitir alhliða lögfræðiþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Okkar markmið er að veita viðskiptavinum persónulega og vandaða þjónustu.
Sunna Björk Atladóttir útskrifaðist með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2014. Hún öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2016 og stofnaði SBA lögmannsstofu árið 2020. Frá því hún lauk háskólanámi hefur hún starfað á lögmannsstofu, fyrst sem fulltrúi og síðar héraðsdómslögmaður. Í störfum sínum sem lögmaður hefur Sunna fengist við hina margvíslegu málaflokka lögfræðinnar bæði í ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.
SBA lögmannsstofa vinnur náið með RH endurskoðun ehf.